jæja, það er bara komin helgi, það er nú ekki amalegt, ég mótmæli amk ekki. fór í tíma í morgun, búin að skrópa í síðustu tvo, ég held því amk fram að það sé betra að mæta í tímann og hripa þetta niður þar heldur en að gera það húkkandi fyrir framan tilraunastofuna og skilja hvorki upp né niður í því sem stendur í glerkassanum, mar hefur amk smá séns að fá nákvæmari útskýringar í tímanum... ég fór svo bara heim að lúlla eftir tímann... er búin að vera svona frekar illa sofin þessa vikuna.... og ég fór barasta heim að lúlla og átti það alveg skilið held ég barasta! núna um helgina þá ætla ég nú samt að vera dúgleg að lesa það sem ég á ettir að lesa, veit mar þarf þess í rauninni ekki en mér finnst það samt betra, kemur fyrir að mar skilji þetta betur í bókunum.... en ég nenni ekki að sitja yfir þessu alla helgina, er ekki búin að líta neitt á sjónvarp alla vikuna á meðan kallinn hefur legið lon og don þar á kvöldin, nú ætla ég amk að taka þátt.. mar verður nú að verðlauna sig pínu pons....
27 september 2003
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|