17 október 2003

híhíhí;) ég fór á Felix að fá mér öl og hlátur því það var nebbla undanúrslit í fyndnasti maður íslands. Gaurinn sem vann var svo fyndin að ég var næstum því búin að pissa í buxurnar. hann fór m.a. að velta fyrir sér íslenskum máltækjum.
t.d "hann var gripinn glóðvolgur" - hafið þið komið við glóð?? hún er EKKI volg!! þegar þú pissar á þig þá er það volgt en þegar þú slekkur í sígarettu á kinninni á þér, þá er það EKKI volgt!
"að vera með allt á hornum sér"- hvaða horn?? og ef ég væri með horn þá væri ég nú ekki að geyma hluti á þeim!
"hann kallar nú ekki allt ömmu sína"- gerir það einhver??
þegar þú ferð og kaupir þér pylsu, segir þú þá: ég ætla að fá eina ömmu með ömmu og ömmu. hvað kostar þetta, 180 ömmur? jájá......
svo er manni sagt í veðurfréttunum að það hafi verið sól í dag! eins og það hafi bara enginn tekið eftir því!?!
svo var einhver sem kallaði Justin Timberlake - bara í vatnaskógi;) þetta var samt víst gamall brandari sem allir voru búnir að heyra nema ég, sem grenjaði úr hlátri.
mjög skemmtilegt mjög skemmtilegt;);)
oooooog það má sofa út á morgun:)