02 október 2003

jæja, loksins tókst mér nú að gera þetta rétt... Ella og Eydís voru að fara, við vorum að klára eðl-vinnubókina... mér tókst að gera þetta soldið vitlaust á nokkra vegu, en það er nú bara gott og blessað, mistökin eru nú bara til að læra af þeim hef ég heyrt... mér var líka alveg fyrirgefið þar sem ég er nú huxuðurinn og framkvæmdaguðinn í þessu tríói ;o)
en já, þegar þriðjudagar eru búnir þá er næstum eins og það sé komin helgi, svona óbeint amk, miðvikudagar eru stuttir og ekkert sem liggur á að læra fyrir fim, fimmtudagar eru líka stuttir og bara 4 dæmi í eðlisfræði sem þarf að klára, svo kemur föstudagur og þá leggst efnafræðin yfir mann... og helgarnar eru notaðar til að ná upp því sem mar er orðinn eftir á og líka að gera afganginn í eðlisfræði... svo kemur mánudagur og þá eru það stærðfræði heimadæmi og undibúningur fyrir efn-tilraunir... svo er það þriðjudagur dauðans, tímar fyrir hádegi sem eru ekki beint þeir fjörugustu og svo efn-tilraun... mar kemur nú ekkert sprikklandi kátur heim eftir það, og þegar heim er komið þá er það stærðfræðin... svona rúllar nú vikan...
en í dag er fimmtudagur og við erum öll kát og glöð, litlir lybbalingar ætla að hittast í kvöld og sjá meira af heimninum, m.a. kíkja í mat á vegamótum og svo prufa nýja félagsskírteini tinktúru á hverfisbarnum, ath hvort þessi tilboð renni ekki ljúflega niður :)
en ég sé það að það verður að finna upp hjólið og koma með svona sprikklandi gula broskalla inn á þessa síðu, þeir eru nú alltaf soldið sniðugir ;)
en jæja, nóg komið af bulli og væli, i gotta go out with my bitch, fara svo og versla í matinn svo mar fái eikkað að éta hér í kveld!
adju