20 nóvember 2003

...djöfullinn...
ég ætlaði að vera svo lukkulega að klára þessa ljótu spennutítrana skýrslu.. og hafði séns á því en þá klikkaði allt... systemið sem ég er með í excel klikkaði... reiknaði út eikkað alveg út í hróa og ég hef ekki grænustu hugmynd um hvernig ég laga það! nú vantar mig lítil tölvu-alviturs-álf...
ég er búin að vera í leiðindardjobbum í dag... gera þessar efnó skýrslur og svo klóraði ég föt... sem er nokkur gott hjá mér því mér finnst klórlykt svo vond... mega vond... ég fæ bara klórbragð í munnin, það er eitt það versta við usa, helvítis klórið í vatninu, ég gat ekki einu sinni tannburstað mig!!!
jæja, best að fara að sofa núna... er að fara í deltu á morgun, jibbí!!! og svo ætlum við guðrún að vera dúglegar að læra...
adíos