HAAAAALLLELUJAAAAAA!!!!
þar með er það búið, þreyttir þriðjudagar eru liðin tíð fyrir mig, amk fram að áramótum!!!!!
WAAAAAHOOOO!!!!!!!
mín bara kláraði efnó tilraunir í dag, og rétt marði það, það munaði nú litlu að ég slyppi ekki...
þar með er vikan orðin nokkuð þægileg.... engir mánudagar eða föstudagar, bara fyrir hád á þri og fim og eftir hád á mið.... ljúfa líf....!!! amk frá og með næsta mánudegi... en hvað gerir mar þau í þessum lausa tíma sem manni er færður á silfurfati... nú lærir bara meira.... nær upp því sem mar er ekki búinn að vera duglegastur í... s.s. efnafræði...
ég er að spá í að fara á hraðlestrar námskeið eftir áramót, 6. vikna prógramm, 2klst einu sinni í viku... en aðal sem stendur í mér smá er að ætlast er til að mar læri heima 1 klst á dag... en það bjargast alveg af því mar má velja sér lestrarefni, það má t.d. vera skólabækur, þannig að það bjargast... ég held þetta sé oggsla sniðugt, amk fyrir mig, ég er nebbla heillengi að lesa og man svo ekkert hvað ég hef verið að renna yfir... með skólaafsl eru þettar 19þús kallar... og ef mar nær ekki tvöföldum leshraða á námskeiðinu (það er prufað í byrjun og lok) þá fær mar endurgreitt skyldist mér...
hver er memm í þetta ???
11 nóvember 2003
Birt af Nafnlaus kl. 20:57
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|