æjæjæj... ég þjáist af síþreytu þessa dagana. á morgnana er fyrsta huxunin: ég hlakka til að fara að sofa í kvöld. svo er helsta óskin að leggja sig yfir daginn, sem tekst aldrei og svo er stefnt á að fara snemma að sofa en það klúðrast alltaf líka... svo er ég líka svöng núna, en þar sem ég er ekki þessi love-to-eat person þá nenni ég aldrei að fá mér að éta, nenni ekki að hafa fyrir því...
ég verð nú að segja frá því hvernig stærðfræðin kennarinn lét í morgun, það hlakkaði í honum. það myndaðist umræða um komandi próf og hann var svona að svara einhverjum fáeinum nemendum þegar salurinn (salur 5 í háskólabíó) þagnaði og fór að hlusta, það var spurt út í hina ýmsu hluti, m.a. af hvaða þyngdargráðu gömlu prófdæmin sem hann hefur látið með heimadæmunum væru, það hlakkaði svo í kallinum skal ég segja ykkur!!! það kom svona einhvernveginn glott á hann sem var engin leið að vita hvað þýddi, hvort hann var að hlæja að paranójunni í okkur eða hvort hann gæti ekki beiðið eftir að byrja að semja eikkað oggsla lúmskt og nastí próf... dunnó
og svo er komið að föstudegi á morgun, á meðan stelpurnar stunda glasalyftingar af mikilli ákefð þá verð ég að káfa á belju brjóstum, pælið í því... ég hlakka samt ekkert smá til að komast í jeppaferð næstu helgi, þó ég komist ekki í hina vísó. það verður nóg af þeim eftir áramót... það verður ekkert smá kúl og gott að komast uppá fjöll í snjóinn og kuldann... ég var líka að fá svo oggsla kúl og góða skel (skel er ystalagið á útivistarfatnaði) og ég get ekki beðið ettir að prufa. svo verður líka gaman að sjá hvernig tíkan fílar sig!!!
06 nóvember 2003
Birt af Nafnlaus kl. 16:04
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|