03 nóvember 2003

well ég sé að ég hef verið skráð í vísó í Lyfju, takk fyrir það sá sem gerði það. sennilega erla tölvunörd en ekki eins mikið tölvunörd og ég. Ég gerði heiðarlega tilraun til að fara í Bónus áðan með Heiði og co. en þá opnar það ekki fyrr en 12!!!! ekkert nema hádegiskellingar í Bónus virðist vera. Þegar ég kom heim svekkt og sár yfir að fá ekki að kaupa mér 1000 matarkex í einum pakka, þá ákvað ég að fara nú að læra! það verður læriátak í þessari viku!!! byrjar voða vel því ég fór beint á netið;/

Mamma mín og pabbi minn áttu 31 árs brúðkaupsafmæli í gær:) vel gert, vel gert!! Til hamingju!!

Hér kemur auglýsing fyrir þá MA-inga sem einhverra hluta vegna hafa ekki tekið eftir öllum hinum auglýsingunum á blogginu hjá hildi, lovísu og fleirum fræknum:
Það er MA-partý á Gauknum laugardaginn 8.nóvember. Byrjar kl.21!!!!!
Hins vegar held ég að það séu nú ekki margir ma-ingar sem lesa þessa síðu aðrir en girlurnar mínar, sem vita nú þegar af þessu. þannig að þessi auglýsing er bara til þess að allir geti öfundað mig hvað ég er að fara í skemmtilegt partý:):):) það var nebbla svo svakalega gaman síðast á Vídalín;)
hurru nú ætlar minns nú að fara að læra stæ:/