18 desember 2003

Búnar í prófum;););););)
þó menn séu nú kannski ekki allir voðalega ánægðir með árangurinn þá er bara svo GOTTTT að sitja við hérna við tölvuna og geta gert það í allan dag ef ég kærði mig um það;););)
Ég verð alltaf svo skrýtin og steikt í hausnum þegar líða tekur á próftíðina.......
En ég kemst líka alltaf að einhverju nýju um sjálfa mig og heiminn í kringum mig, þar sem ég er í sífelldri leit að einhverju öðru til að gera. það bara virðist allt vera meira spennandi en að læra!!! meira segja að þrífa örbylgjuofninn eða klósettið!
Hér eru nokkrar blákaldar staðreyndir, sem mér urðu ljósar í nýliðinni próftíð;

- Þetta strumpapróf, sem við tókum allar, er marktækt....
ég ER lati strumpur!! og mun ég aldrei reyna að þræta fyrir það

- það tekur mig þrjár "þvottadagalausar" vikur að ganga í nánast hverri
einustu spjör sem finnst í fataskápnum mínum......
ég bara hafði ekki áttað mig á því hvað ég á mikið af nærfötum,
en þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég er í ljótum nærfötum núna,
.....ég man það núna af hverju ég fer aldrei svona aftarlega í skúffuna.

- þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þá get ég EKKI hækkað í útvarpinu með
hugarorkunni.....
fjarstýringinn af fermingargræjunum er nebbla e-ð biluð....já eða það
vantar kannski bara batterí í hana
(cell potential er kannski 0 í þessum sem eru í henni núna;)gubbgubb

- þegar ég geri áætlun yfir það hvernig ég ætla að haga próflestri.....
þá get ég alltaf treyst á það að vera allavega degi á eftir áætluninni,
merkilegt hvað maður ætlar sér alltaf að gleypa allan heiminn þegar
maður byrjar að læra og endar svo á því að eiga meirihluta efnisins
eftir kvöldið fyrir prófið
....rétt komin uppí leifsstöð þegar heimsreisunni og gleypingunni átti að
vera að ljúka

- það er frekar gagnslaust að þrífa örbylgjuofninn þegar það er bara
búið að poppa einn popp-poka í honum frá því þú þreifst hann síðast...
en það er bara þessi þörf.....að gera allt annað en að læra, sem heltekur
mig um leið og próftíðin skellur á:/:/


But anyways, ekkert smá yndisleg tilhugsun að vera að fara að vinna á morgun en ekki að læra;) og svo eru jólin bara alveg að koma og ég er ekki komin í neitt jólaslap ennþá. en það hlýtur að koma þegar maður hefur actually tíma til þess að hugsa um það.....
svo ég segi nú bara GLEÐILEG JÓL ;)