Ég er búin að eyða öllum deginum í það að vera alveg að fara að læra en finn mér einhvernveginn alltaf eitthvað annað að gera, eins og t.d. að hanga á netinu í nokkra klukkutíma............
ég var að lesa spakmæli áðan og mörg þeirra voru frekar sniðug, en ég fattaði náttla ekki að skrifa þau niður svo ég man bara nokkur but here it goes:::
Íslendingar eru gáfaðasta þjóð í heimi- þeir fundu Ameríku........ og höfðu vit á að týna henni aftur. (Oscar Wilde)
Meðvitund- þetta pirrandi tímabil á milli þess sem ég legg mig;)
Þú verður að vakna ef þú vilt að draumar þínir rætist!!!
Svo var einn sem var að spá í faðirvorinu og setningunni:..eigi leið þú oss í freistni.
,,,,það hefur aldrei neinn þurft að leiða mig í freistni- þangað hef ég gengið einn og óstuddur.......
Búið
Í tilefni þess að ég er ekki búin að gera rassgat í dag þá ætla ég bara að skella mér á k-kvöld með stelpunum til að verðlauna mig fyrir dugnaðinn.
adios;););)
02 desember 2003
Birt af Eydís kl. 18:25
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|