jesss, þá er það bara búið!!!
eða svona næstum... en þetta stæ próf jafnast nú næstum á við hin tvö til samans... svona eftirá að hyggja þá var jú eila bara skárst að klára þetta fyrst... þá er mar ekkert að tjúna sig upp útaf því lengi lengi... svo var bara letidagur í gær... asskoti gott, bara horfá á tv-ið eftir að mar búin að sprikla í ræktinni.. og svo svaf ég út í morgun... eða þannig, skreið frammúr kl 11 þegar klukkar var búin að snozzast soldið oft... veit ekki hver stóð á bak við það... en það sem er merkilegast á þessum morgni var að mig dreimdi bara venjulega ruglaðan draum!!! hann snérist um eikkað party sem systir mín og vinir hennar, gamlir kórfélagar, gamlir fsu félagar og systkini hans pabba voru í, semsagt frekar klikkaður, en pointið er að það var ENGIN stærðfræði í þessu!!!! mig er nebbla búið að dreyma stæ 2 nætur í röð og þ.a.l. ekki búin að sofa neitt súper vel, en þessi nótt var ljúf! svo núna þarf ég að fara að huga að efnafræðinni... nenni því samt ekki... finnst eins og mar sé búinn að fá nó! samt er mar bara búinn með 1 próf af 3 og hefur það í raun bara ljúft... veit samt ekki hvernig ég verð eftir efnafræðiprófið... það á eflaust eftir að ganga eikkað illa að þrífa og versla eins og planið stendur til, amk miðað við hvernig ég er núna eftir þetta eina próf.... æjæja... hætta þessu kellingavæli.. mar hefur ekki gott af þessu...
EN mig langaði samt að spyrja ykkur stelpur, hvernig er stadusinn á jólaglöggi???
það er hafin skráning á tinktúru... sýnist þetta vera efnilegur kostur sko...
eigum við ekki að skella okkur???
11 desember 2003
Birt af Nafnlaus kl. 12:37
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|