30 janúar 2004

oij (nýjasta kveðjan í gangi hjá mér...)
mar er nú latur... en svona aðeins að vakna til lífsins... var að pikkað eikkað inn alm.efnó skýrslu #2... frekar súrt öll þessi efnahvörf... leiðinlegt að pikka þetta inn... but beauty is pain...
svo ætlar mar að vera dúglegur á morgun... fara í ræktina og síðan beint á hlöðuna til að sökva sér niður í bækur svo mar vilji leyfa sér að prufa sleðann um helgina... er að vera soldið hörð við sjálfa mig og aga mig til, ekki verðlauna sjálfa mig með skemmtunum ef ég hef ekki unnið mér inn fyrir þeim... öðruvísi gengur þetta ekki...
úff púff... ég er so sibbin núna, kannski af því að ég var ekkert heima í dag heldur á þönum eftir hádegi í dag út um allan dag sko... fór meira að segja í sjálfvirka þvottastöð í dag hjá löðri, frekar fyndið stöff... svona tilfining eins og það eigi að pakka saman bílnum í lítinn kubb... á meðan mar er í honum!
anyways... ætla að gera mig reddí í svefninn... ekki veitir af !!
stuðnings-læri-kveðjur!!