sjitturinn hvað ég er að fá grænar bólur af þessum efnajöfnum, það er sko pein í bossann að slá þetta inn í tölvu! halló halló, 13 liðir með amk 2 og uppí 6 efnaformúlum sem rita skal með jónunarástandi og fasaástandi, upp og niður, uppi og niðri... sjitt, og svo á ég eftir spurningarnar!! ég bara hreinlega get ekki svarað þeim beint á tölvuna, verð að skrifa þetta niður og pikka það síðan inn því ég er svo lengi að pikka þetta að ég mundi þurfa að svara sömu spurningunni 300 sinnum því ég mundi alltaf gleyma svarinu inn á milli pikksins... ég bara get næstum ekki beðið eftir að pikka inn 3 skýrslur í efnógreiningu og undirbúa jónirnar fyrir morgundaginn!!
03 febrúar 2004
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|