26 apríl 2004

mér finnst versti tími dagsins vera morgnarnir, því þá þarf ég að vakna.... grr... vildi geta bara sofið og sofið og sofið aðeins lengur... en það er ekki í boði.... afturámóti er í boði að hittast fyrir lífeðl prófið og fara yfir gömul krossapróf, var það ekki í umræðu? Svona að hittast og fara saman yfir bæði prófin í fyrra (er ekki til fleiri á netinu...) af því það eru nottla engin svör, og kannski veit einhver eitthvað sem við hinar vitum ekki, hvað er rétt og réttara. ég legg til að við hittumst á miðvikudaginn, held að fimmtudagur sé alls ekki kjörinn og þri of snemma.... ég legg lika til að hittast kl ~4-6 og það í náttúrufræðahúsinu, við getum tyllt okkur í gryfjuna td, mjúk sæti og fínerí, held við þurfum ekkert næði fyrir þetta, það er hvort eð er ekkert næði af okkur þanig að við verðum líka að taka tillit til þess... svo finnst mér alveg sniðugt (ef ykkur er nottla sama) að spread the word, td til kristínar og maddýar, katrínar, hrannar, strákanna... þið skiljið hvað ég á við.... allavega, komið með smá komment á þetta hérna í pillupartýinu og þá getum við neglt þetta niður, þetta eru nottla bara hugmyndir hjá mér...
anyways, back to the books