27 apríl 2004

Tilkynning, tilkynning:
Vegna tækniörðuleika hefur verið ákveðið af nefndinni að seinka fundi morgundagsins aftur á áður ákveðinn tíma. Því mun menntunar-stuðnings-hittingurinn eiga sér stað í Öskju at 1600 hours military time.... boðið verður upp á engar veitingar nema örverufræði skýrslur í boði Elínborgar sem mun nálgast þær fyrir okkar hönd á áður auglýstum tíma, aðstandendur eru beðnir um að koma með nesti og nýja skó fyrir mig.... Einnig er viðeigandi að hafa góða skapið og stuðningsorðin með í farteskinu en skilja pirringinn og stressið eftir heima í nintendo-tölvunni. Nákvæm staðsetning er 1600° austan aðalingangs, 200 skrefum frá klósettinu, 300.000 mm yfir sjávarmáli, eða í gryfjunni fyrir miðri byggingu....
vonumst til að sjá sem flesta
nammi og gos vinsamlega nauðsynleg
Nefndin