24 júní 2004

Kona ein kom í apótekið og bað lyfjafræðinginn um arsenik svo hún gæti myrt manninn sinn. Lyfjafræðingurinn sagði að hann mætti ekki selja henni arsenik til þess. Þá sagði hún, en hann hefur haldið fram hjá mér!
Lyfjafræðingurinn taldi það ekki góða og gilda ástæðu og neitaði enn.
Þá dró konan upp mynd af manninum sínum í miðjum samförum við konu lyfjafræðingsins. Þá sagði lyfjafræðingurinn: Ó fyrirgefðu! ég vissi ekki að þú hefðir lyfseðil!