05 júlí 2004

Í gær var ég að vinna á lyfjafræðisafninu og það komu gömul hjón að skoða. ég labbaði með þeim í gegnum sýninguna og þau voru mjög hrifin. Þegar þau voru að fara þá kysstu þau mig bless!!!! Hver kyssir safnvörðinn "sinn" bless?!?!?!?!
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið! Skömmu síðar komu svo 2 6 ára guttar aleinir á safnið. Þeir voru mjög áhugasamir enda ætlar annar þeirra að verða vísindamaður en hinn fótsporafræðingur. Svo átu þeir öll vínberin mín og skemmtu sér lengi yfir að skoða bókina sem ég hafði tekið með mér að lesa!
Þetta var allt frekar óraunverulegt e-ð