26 ágúst 2004

Jeij ég varað fá skólabækurnar sendar. Mjög ánægjulegt. Samt var það ansi skrýtið að tollurinn hélt einni bókinni eftir. Ég þarf að keyra lengst uppá Höfða tilað redda þeim málum. Það er bók sem ég keypti notaða af amazon. Skrýtið að þeir geri e-ð veður útaf notaðri bók!
Þetta verður nú ansi dýrt spaug miðað við bensínkostnaðinn í dag.
Annars er ég að fará sýningu á nýja porsche 911 í Perlunni á morgun. Ég hlakka svo til það á eftir að verða æði. Ég get næstum fundið lyktina af leðursætunum strax....