Sagan af GS og geitungnum illa
Fyrir meira en 1,5 viku síðan var ég stungin af geitungi. Ég varað komúr sturtu og að klæða mig í buxurnar þegar ég fann ógeðslan sting í fætinum. Ég lyfti upp buxunum og mér til mikillar skelfingar var geitungur fastur á löppinni á mér rétt við ristina. Ég öskraði upp og byrjaði að hrista löppina. E-n vegin tókst geitungnum að fara af löppinni á mér og uppí gluggakistu og drepast þar.
Mamma og systir mín voru alveg skelfingu lostnar yfir öskrunum í mér. Svo plokkaði mamma broddinn úr sem var án gríns RISA stór. Þetta leit ekkert út fyrir að vera alvarlegt en til vara tók ég eina histasín og setti própanól í bómull og á sárið og plástur yfir.
Svo bara gerist ekki neitt en núna fyrir 2 dögum byrjaði þetta að líta doldið illa út. Ég vildi helst bara fá e-ð við kláðanum í þessu (samt MJÖG gott að klóra í þetta) en mamma vildi að ég hringdi uppá læknavakt. Hjúkkan þar sagði mér að koma en ég tímdi nú varla 1500 kalli í e-ð svona smáræði.
En þegar ég kom þá rétt leit læknirinn á þetta og tók andköf og hófst svo handa við að skrifa lyfseðil uppá risa skammta af stakloxi 3 á dag. Svo sagði hún að smjör væri mjög gott gegn geitungastungum ef það er borið á strax. Prófa það næst...
Allavega er endirinn á þessari sögu að érað deyja í löppinni, á erfitt með að standa í hana og bara með mjög alvarlega sýkingu í henni.
OG NÚ VEIT ÉG AKKURU MENN ERU HRÆDDIR VIÐ GEITUNGA
13 ágúst 2004
Birt af gudrunst kl. 22:42
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|