05 september 2004

Halló allir!
mikið rosalega er gott að vera komin í höfuðborgina á nýjann leik, verst að þetta er bara tímabundið vegna þess að ég er auðvitað að missa íbúðina vegna lélegrar útkommu úr prófum. En það er allt í lagi vegna þess að mér finnst gaman að taka rútu tvisvar á dag alla daga vikunnar(ok þetta er kannski ekki alveg satt en mar verður að líta á björtuhliðarnar) Þannig að planið er fyrir þennan vetur að vera dugleg að læra og ná þá prófunum með einhverri annnari einkun en 5 ekki það að fimm sé slæm tala en kannski soldið slöpp þegar mar er að taka allt í annað skiptið. En mér er ekki að ganga nógu vel að læra í dag því ég er búin að ná mér í hálsbólgu og kvef og mér finnst eins og hausinn á mér sé að springa. Ég verð að fara að hitta ykkur annars árs stelpur (ooooo hljómaði þetta ekki vel, 2.árs) því að ég er ekkert búin að sjá ykkur síðan í mai. ætlið þið ekki allar á nýnema djammið, hvenar er það eiginlega?
hlakka til að sjá ykkur:)