Það snjóar úti...
Kostir: Mann langar ekkert að fara út, þannig að það er ekki eins erfitt að setjast niður og fara að læra... mar kemst í jólafíling, verður léttari í skapi og svona veivei, þið skiljið mig... það er svo ósköp kósí og góður fílingur að kveikja á kerti og hita sér kakó, allt verður einhvervegin þægilegara, það eru jú hvort eð er að koma jól :) ... nú langar mig að kippa fram snjósleðanum mínum og fara að leika mér!!
Gallar: Mar þarf að vera á vetrar dekkjum og ég er að fara að sækja mín á eftir sem þýðir að ég þarf að fara fyrst á staðinn á slitnu sumardekkjunum mínum (don't like that feeling)... áður er jólin koma þá koma prófin, það er ekkert veivei... ég þarf að fara í ræktina og samkvæmt hefði (aðalega af því það eru aldrei laus bílastæði) og samkvæmt því að ég er enn á slitnu sumardekkjunum þá þarf ég að fara hjólandi... og þá er nú reyndar vindurinn verri en snjórinn...
...æj, ég er eila bara fegin að það séu engir tímar í dag, nú get ég bara "hangið" inni og notið snjósins að mestu gegnum rúðuna ;)
18 október 2004
Birt af Nafnlaus kl. 09:29
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|