24 nóvember 2004

ji minn eini guð í himninum !!! hvað hef ég gert heiminum til að verðskulda þetta??
Þannig er nebbla mál með vexti að ég bý í svona litlu fjölbýlishúsi þar sem eru í raun 2 húsnúmer í sama húsi... hitt húsnúmerið (sem ég bý semsagt ekki í) hefur greinilega annaðhvort ákveðið það að gera mér lífið leitt eða bara ég veit ekki því unanfarna 1,5-2 mánuði þá er búið að vera að laga húsið eikkað, búið að vera stillansar utanum það allt og einhverjir kallar að dunda sér við þetta svona við og við þegar þeim henntar.... og það er nokkuð greinilegt að annað hvort gera þeir ekkert eða öll verkin sem krefjast engrar hávaðamengunar akkurat þegar ég er ekki heima eða ekki að læra því það bregst ekki að þegar duglega-ég sest niður og reyni fyrir mitt litla líf að finna einbeitinguna mína og byrja að lesa og læra fyrir skólann þá fara hlutirnir að gerast hjá þeim... td þegar ég var að lesa þarna fyrir lífeðslifræðitilraunina síðast (ég þarf sko að berjast í gegnum að lesa þessa bók... hef svo enga einbeitingu við hana) þá byrja þeir á því að rífa þakplöturnar af þakinu og henda þeim (3,5 hæðir) niður í garðinn sem er svona 5 metra frá glugganum mínum, jess!! svo núna í gær var ég fyrst í alvöru að fatta hvað það er stutt í próf og með sparkfar í rassinum eftir sjálfa mig þá settist mín niður áðan að læra... neinei, þá þarf endilega af öllum tímum að byrja að saga nýju þakplöturnar með tilheyrandi hávaða!!! ...og akkurat þegar ég settist hérna niður og fór að rita þetta (s.s. að gera eikkað annað en að læra) þá bara allt hljótt!
i'm going crazy hérna á þessu... samt er ekkert hægt að segja... er nottla bara kristilegur vinnutími... bara alveg óóótrúlegt hvað þetta hittir alltaf akkurat á... bömmer !