úff það er aldeilis farið að styttast í lífrænuprófið. Er einum of stressuð! Mun ábyggilega ekkert geta sofið í nótt sem er kannski ágætt því þá get ég reynt að læra efnahvörfin utan að en ég bara virðist ekki geta lært þau!
Áðan ætlaði ég að horfa á fyrsta þáttinn í sex and the city Jón var svo elskulegur að gefa mér fyrstu seríuna í gær. Ætlaði að bíða þar til prófin væru búin en fannst ég eiga skilið að taka mér smá pásu auk þess sem ég varð að slappa aðeins af. En þá var diskurinn bara gallaður og ég er ansi fúl! Komst að því að ég hafði aldrei séð fyrsta þáttinn en nú get ég ekki séð hann fyrr en ég hef náð að fá nýjan disk!
Auk þess sem þetta gerði að verkum að ekkert verður úr pásunni minni og ér bara farin uppí rúm með efnafræði glósur þar til ég sofna.
15 desember 2004
Birt af gudrunst kl. 01:05
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|