03 apríl 2005

Ég fór með mömmu á snyrtivörukynningu hjá vinkonu hennar í gær. Þegar ég kem inn úr dyrunum segir vinkona hennar "til hamingju með....æ nei þú fermdist auðvitað í fyrra!". Við mamma litum bara hvor á aðra svo sagði hún að ég væri Guðrún ekki Gyða systir mín sem er 14 ára! Þegar við komum inn í stofuna segir önnur vinkona mömmu "nei Gyða, gaman að sjá þig" .... ég bara "halló!!!!! ég heiti Guðrún og er á öðru ári í háskólanum!!!!!!!"
Mjög nýlega var ég í Kringlunni og þá hélt frænka mín sem er einmitt jafngömul systur minni og góð vinkona hennar að ég væri systir mín!
Þetta er að verða ansi vandræðalegt en ef þið viljið vita leyndardóminn á bak við unglegt útlit þá er það mikil pepsi max drykkja, sofa fram eftir um helgar og gleyma að þrífa málninguna framanúr sér á kvöldin ;)