23 maí 2005

Einkunnirnar streyma inn og einhvern veginn finnst mér eins og eðlislyfjafræðin hafi verið sköluð upp. Það er ótrúlegt að aðeins fjórir hafi fallið í þessu furðulega prófi. Ég er samt sátt þótt að þetta sé mín slakasta einkunn, bætti það upp með lífrænu. Þá er bara fara að bíða eftir lífefna Ly og svo geta námslánin farið að streyma inn.