jíbbí!!! loksins loksins er þetta búið, mig er búið að dreima þennan dag mjög lengi. Það er samt soldið skondið mig hlakkar alltaf svo til að prófin séu búin en sammt alltaf þegar ég er að fara í próf óska ég þess alltaf að ég hefði einn dag enn til að læra, en það er ábyggilega bara stress og það að ég náði ekki að fara almennilega í efnið eins og ég ættlaði, er aldrei nógu dugleg yfir önnina:( Verð duglegri næst( segi þetta reindar á hverju ári) En til hamingju allar með að vera búnar í prófum, vonandi hafið þið það gott í sumar:) verðið brúnar og sætar, sem minnir mig á það er einhver með skemmtileg plön fyrir sumarið, útlanda ferðir eða eitthvað spennandi?
13 maí 2005
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|