21 maí 2005

Jæja ég er loksins komin heim, með fjögur göt á maganum og einu líffæri færra en venjuleg manneskja. Ég verð bara heima næstu daga og ætla að horfa á alla framhaldsþætti sem ég hef misst af eins og t.d. lost og desperate houswifes. Þetta hljómar kannski ágætlega en mig grunar að ég verði komin með ógeð á rúmlegunni á morgun, enda er ég búin að liggja í rúminu síðan á fimmtudaginn.