Uss, klikkað gott veður maður !!!
svona á sumarið að vera, skella sér á línuskauta um morguninn, rúlla svo út í bakarí að kaupa rosa gott brauð, leggjast svo út í garð í sólina og dorma soldið í sólinni, þrífa bílinn og spóka sig smá í ís-bíltúr... að sjálfsögðu er mikilvægt að loka þessum glæsilega degi með því að grilla, annað er ekki hægt!!!
Annars er mar búinn að skrifa undir kaupsamning að nýju íbúðinni og getur ekki hugsað um neitt annað en hvernig mar eigi nú að mála og innrétta og allt sem því fylgir, verst að það eru amk 3 mán þangað mar kemst með puttana í það að gera eikkað, og þá gerist allt 1,2 og 10 og mar gleymir líklegast amk 2/3 af því sem mar var búinn að "plana", en það er bara partur af programmet!
Annars er glæsihöllinn í engihlíðinni enn á sölu ef e-r hefur áhuga ;)
17 júní 2005
Birt af Nafnlaus kl. 19:20
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|