01 júlí 2005

Ég var að kaupa mína fyrstu íbúð, enda er kominn tími til að flytja úr foreldrahúsum. Ég verð víst að selja bílinn minn til að fjármagna þetta en það er svo stutt í skólann að ég ætti að lifa það af að vera bíllaus. Það verður því líklegast lítið um djamm í vetur og engar utanlandsferðir næsta árið.