LOOOOOOOOOOOOOKSINS getið þið leyft ykkur að óska mér til hamingju!!!! Já, sú stutta stóð sig svo prýðilega í sölumennskunni undanfarin 2 kvöld að í dag er íbúðin okkar seld og við brosum hringinn í kringum heimin við erum svo fegin að vera laus við þessar áhyggjur :) Fengum akkurat fyrir íbúðina sem okkur vantaði til að fá á milli pening til að gera og græja nýju íbúðina og erum þokkalega sátt, enda ekkert smá góð tilfinning að geta hlakkað 100% til að flytja án þess að þurfa að hafa áhyggjur fyrst, og nú þarf ég ekki að rjúka heim og taka til eins og drottningin sé að koma í heimsókn heldur get ég leyft mér að rusla það mikið til að ég sé lengur en 1 klst að taka til (ekki að það sé eikkað sem ég legg í vana minn....)
Reyndar þurfum við að afhenda íbúðina 23.ágúst og fáum nýju afhenda 1.sept og eigum þá eftir að vera amk 2 vikur að taka hana í gegn þannig að í 3-4 vikur verðum við hálf heimilislaus, þó elsku mamma sé búin að lofa að hún reddi okkur (besta mamma í heimi, segi það satt) ...geri heldur ekki ráð fyrir því að geta kallast vera í skóla fyrsta rúma mánuðinn því þegar flutningsbrjálæðið er yfirstaðið þá stígum við upp í flugvél þann 30.sept og skellum okkur til Barcelona í 5 daga ferð með vinnunni hjá Axel, enda held ég að okkur veiti ekki af að tjúna okkur aðeins niður eftir það sem á eftir að ganga á... þannig að ég hef í raun enga viðtalstíma lausa fyrr en í okt, þangað til verð ég mjög upptekin um að dreyma um nýju íbúðina, láta hana svo finna fyrir mér og slappa svo af í sólinni, er það annars ekki svona sem á að gera þetta ?!?! ;)
21 júlí 2005
Birt af Nafnlaus kl. 20:41
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|