14 ágúst 2005

Jæja þá er mar búinn að færa sig um set, er komin nær nýja heimilinu og fjær því gamla, erum núna staðsett nánast við hliðina á laugardalslauginni... vorum að stíga inn í millibilsástand og verðum hérna þar til við verðum búin að koma nýju íbúðinni í sæmilega íbúandi form... er varla hægt að kalla hana það núna, fórum í vikunni að skoða hana aðeins og þurftum nánast á áfallahjálp að halda eftir heimsóknina... við höfðum semsagt fegrað hana töluvert í minningunni, gleymt hversu illa hún var spössluð og stækkað hana líka töluvert (ekki það að hún sé eikkað lítil í raun og veru). annars erum við svo heppin hérna að frændi minn var að flytja á efri hæðina og er svo skemmtilega útbúinn að vera með þráðlaust internet sem hann vildi leyfa okkur að njóta aðgangs af, heppin við að missa ekki alveg af umheiminum á meðan ;) annars er þessi flutningur farinn að vera ekki bara tóm hamingja, td var voffalingurinn að fara á laugardaginn í pössun í sveitina til ma og pa og verður þar þartil við flytjum í skipasundið, eða í líklegast 1,5 mánuð... ég tímdi næstum því ekki að sleppa henni í svona langan tíma, suss, ég vildi titla þetta móðureðlið í mér sem kom þarna í ljós... svo er líka soldið erfitt að hugsa til þess að vera að flytja úr engihlíðinni.... ég meina, okkur hefur nú líðið rosa vel í henni, og svo er þetta nottla fyrsta íbúðin okkar og svona... var soldið skrítið að sjá hana áðan svona hálf tóma og á tjá og tundri... ég á samt eftir að pakka nokkrum hlutum, þvo smá þvotta og nottla að ryksuga og skúra, ætla að geyma það til síðast svo mar geti nú loksins skúrað suma af þessum blettum sem hafa ekki verið skúraðir í næstum 3 ár ;) annars kemur vonandi í ljós á þri hvort við gætum fengið skipasundið afhent fyrr, erum sko að krossleggja alla fingur og tær um að það gerist, svo mar hafi nú eikkað að gera svona á kvöldin ;) þá er fréttaflutningi kvöldsins lokið, býst sossum við að fréttir verði tíðari núna fram í sept (þeas ef við fáum ekki afhent fyrr;) þar sem ég sé þónokkra hættu á því að mér eigi eftir að leiðast fram að því... until nexttime... chao