28 september 2005

Hér kemur klukkið mitt;)


1. Þegar ég var yngri þá langaði mig alltaf að heita María og vera með blá augu, því það eru til svo ótrúlega mörg lög um Maríu eða stúlkuna með fallegu bláu augun. Í dag langar mig nú bara aðallega að einhver semji lag um mig.....en er samt soldið hrædd við hvernig það myndi hljóma!!

2. Mér finnst presturinn sem fermdi mig alveg sjúklega myndarlegur.

3. Þegar ég var ca. 10-14 ára þá gekk ég nær eingöngu í rauðum peysum (ég meina sko á efri parti líkamans-var sko alveg líka í buxum sko).

4. Ég veiti því alltaf sérstaka eftirtekt og bendi yfirleitt einhverjum á það ef það er kúl tölur á svona digital klukkum, eins og t.d 11:11, 22:22, 12:34, 23:45. Finnst sko sérstaklega gaman þegar ég tek eftir svona fibronacci runu eins og 12:35 eða 23:58, þegar tölurnar eru síðust 2 tölur lagðar saman.

5. Ég GET EKKI teiknað og það er nú reyndar á mörkunum að ég geti skrifað. Held að það sé ekkert svona forrit í mér!! Ef það er þá þyrfti kannski að updeita það.
Fékk nefnilega einhver aukaverðlaun í teiknisamkeppni þegar ég var 9 ára en mér hefur bara ekkert farið fram síðan;(
Fékk sko 15 cheerios, hunangs cheerios og kókópuffs pakka í verðlaun og naut þess í botn að eldri systkini mín þurftu alltaf að spyrja mig um leyfi þegar þeim langaði í kókópuffs (það var sko lang vinsælast því það mátti vanalega bara borða svoleiðis á sunnudögum).

Here it is ;)