22 október 2005

Ég bara verð að deila þessu með ykkur gellur! Þetta er þvílíkt ego boost!!
Ég var sem sagt á djamminu í gær eins og fleiri eftir vísindaferðina og endaði á Glaumbar aldrei þessu vant. Sat þar og var að spjalla við strák en svo fer hann á klósettið. Þá sit ég sem sagt ein eftir...kemur þá ekki einhver stelpa til mín og spyr hvort ég sé með strák. Ég er ekki alveg að fatta hvað hún er að meina þar sem ég hafði setið með strák en er ekki MEÐ honum. þannig að ég sagði það nú bara, ég væri ekki á föstu en væri reyndar að spjalla við strák.
...og þá segir hún: Já ég vildi bara vita það því það eru þvílíkt margir strákar hér að reyna við þig og ALLA vini mína langar í þig...svo bendir hún út í horn þar sem allavega 5-6 strákar sitja saman! Ég varð alveg orðlaus!
Sagði bara e-ð já er það...eh...en gaman.... roðnaði svo eins og ég veit ekki hvað!!!

Þetta var einstaklega gott ego boost bara :)