16 október 2005

Jæja það vildi svo undarlega til í dag að ég sat heima hjá mér og var að læra! Einmitt Guðrún Stef barað læra...gerist sjaldan...
já og þar sem ég sit við skrifborðið lít ég skyndilega upp og sé ég ekki bara hvar Skuggi stendur fyrir utan gluggann hjá mér með fugl í kjaftinum ótrúlega stoltur!
Ég algjörlega panikkaði og gat ekki hleypt honum inn! Greyinu litla! Hljóp uppí stofu og þaðan útí garð. Hann var svo stoltur litla dýrið mitt að geta fært mér þessa gjöf og sýnt mér ást sína en ég var sko alveg að æla bara!
Ég hleypti honum inn og jarðaði fuglinn. Svo tilað Skuggi myndi ekki fatta neitt keyptum við pabbi kjúkling og elduðum í kvöldmatinn! Það er uppáhaldsmaturinn hans Skugga og þá gat hann líka haldið að þetta væri bara litli þrösturinn sem hann kom með inn!
Maður vill nú ekki láta hann halda að maður sé að fleygja villibráðinni sem hann kemur stoltur með heim handa manni!