Það er alveg nokkuð ljóst að Tátu hefur ekki leiðst á meðan ég fór í skólann í dag. Þegar ég kom heim var nammiskálin mín tóm, allt súkkalaði horfið (henni finnst það gott) og restin s.s. lakkrís og brjóstsykur var límt á sófann, stofuborðið og skóladótið mitt. Það er alveg ótrúlegt að hún skuli þurfa að sleikja hvert einasta stykki þegar henni finnst það vont á bragðið. Ætli ég verði ekki að rölta út í búð núna og byrgja mig upp aftur svo ég geti farið að læra.
30 nóvember 2005
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|