25 nóvember 2005

jæja jæja...sem sagt enn einn netleikurinn farinn af stað og ég hef verið kitluð af Elínu J....(fyrir þá sem vita kitlast ég auðveldlega svo here it goes....)

7.hlutir sem ég ætla að gera þegar ég verð stærri
1. Fara til Rússlands
2. Læra rússnesku áður en ég fer til Rússlands
3. Bakpokaferðalag um Austur-Evrópu
4. Heimsækja Röggu mína og hitta manninn hennar!
5. Kaupa mér hús með nuddbaðkari og risastórum fataskáp (svipaðan eins og Carrie á)
6. Flytja að heiman (og fara að búa í þessu fína húsi sem ég kaupi)
7. Útskrifast úr háskólanum

7 hlutir sem ég get gert
1. Venjulegur kamel og pelvis camel
2. Talað íslenskt táknmál
3. Bakað góðar kökur
4. Sungið með öllum Rammstein lögunum þrátt fyrir að kunna hvorki að syngja né tala þýsku
5. Búið til eld á 3 mismunandi vegu þ.e.log cabin, tepee og A-fire
6. Dansað eins og brjálæðingur á djamminu, alla nóttina, þrátt fyrir að vera EDRÚ
7. Spilað á píanó og blokkflautu.

7 hlutir sem ég get ekki gert
1. hnykklað augabrúnirnar
2. rúllað tungunni uppí pylsubrauð
3. farið í handahlaup
4. hoppað jafnfætis upp stiga með 10 kg bolta í fanginu (don´t ask)
5. staupað tequila
6. borðað mjólk
7. hlustað á fólk láta braka í sér *hrollur*

7 hluti sem ég sé einmitt núna
1. kötturinn minn
2. gervi sólblóm í blómavasa
3. skrifborðslampinn minn
4. blaðaúrklippa úr stúdentablaðinu með mynd af mér
5. miðinn frá hómópatanum til minningar um allt sem ekki má!
6. vatnsbrúsinn minn úr leikfiminni
7. dagatal sem minnir mig óþyrmilega á hve stutt er í prófin

7. orð eða setningar sem ég nota mikið
1. Þú ert algjör!
2. Æi þetta reddast
3. Loves it
4. Ætlast hann til að við skiljum þetta? Af hverju getur hann ekki útskýrt þetta!
5. Það eru bara ekki allir svona sætir
6. Já...það minnir mig einmitt á í sex and the city þegar...
7. Kavíar ! (þegar ég er að tala við Röggu)

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið
1. Brún augu
2. Fallegt bros
3. Dökkt hár
4. Stórar fallegar sterklegar hendur
5. Sjálfstraust
6. Herramennska
7. ítalska....

2 manneskjur sem ég ætla að kitla
1. Ragga mín
2. Eydís því hún bloggar svo sjaldan hér