29 desember 2005

Gleðileg jól stelpur mínar:) vonandi eru þið allar búnar að hafa það gott um jólin, sofa fram eftir og borða mikið og góðan mat. Ég veit að ég er búin að borða rosalega mikið og það er rosalega erfitt að drulla sér fram út á morgnana, en það eru nú einu sinni jól. Litla sistir er búin að vera heima um jólin og erum við búnar að horfa á hverja bíómyndina á fætur annari með ís í annari og jólaöl í hinni, lúxus líf þetta. Svo kemur bróðir minn og kærastan hanns og auðvitað hann Elías Ingi uppáhalds frændinn minn sem er orðinn 4. mánaða til okkar á gamlársdag, ég er rosa spennt að fá þau í heimsókn. Verð nú að fara að hitta ykkur bráðlega, veit ekki hvenar ég sá ykkur síðast. Hitti reindar Eydísi á hlöðunni í lok nóvenber en það var náttla ekkert hægt að spjalla, stelpan var að verða sein á rútuna sem er ekki óalgengt. Vonandi gerið þið eitthvað skemmtilegt um áramótin og ég vonast til að sjá ykkur eitthvað á nýju ári!