26 janúar 2006

Ó mæ god hvað við eru hryllilega lélegar/sorglegar í bloggtíðinni!
Í mínu tilviki nær bara alsherjar letin sem hrjáir mig þessa dagana líka yfir bloggframistöðu mína, nenni bara að lesa blogg, ekki blogga sjálf... samt alveg ýmislegt að "frétta", sífellt að fyllast heimilið af fallegum og mis-nauðsynlegum hlutum, td uppþvottavélin loks komin í hús (ýtir heldur betur undir letina hjá manni, en man, þvílíki munurinn) nýtt eldhúsborð komið á svæðið, töluvert stærra og stæðilegra en hitt gamla og svo er ég að bíða eftir að nýjasti fjölskyldumeðlimurinn mæti á svæðið, þeas fartalvan "mín" sem er að koma úr fríi úr ameríunni, þá getur mar nú farið að vinna að þessum verkefnum (jájá, eilífar afsakanir, er bara miklu auðveldara að búa þær til en að actualy læra ;) Annars fór ég og verslaði gæða klukku fyrir okkur í skólan svo kennararnir fari nú vonandi að leysa okkur út á réttum tíma!!
Þess utan að eyða tímanum í að eyða peningum þá hef ég verið sæmilega dugleg í ræktinni (mæti nánast á hverjum degi en afrekin misjöfn) og að hitta gömlu góðu vinkonurnar! Bauð td heim í vidjó í seinustu viku og kíkti svo í saumó um helgina, á báðum stöðum var fámennt en góðmennt :) Svo er ég á leið út uþb núna að kíkja á gardínur þannig að kannski fer að koma að því að ég fari að bjóða fólki formlega í heimsókn og standa við það ;)
Well, þetta hlítur að hrinda af stað blogghrinu í gang á 5,0... er amk (vonandi) góður starter ;)