Ég er orðin svo þreytt að vera endalaust slöpp (búin að vera það síðan ég varð veik fyrir 3 vikum síðan), ætla mér að gera svo mikið en ekkert gerist. Var búin að koma mér fyrir í sófanum í dag með popp, kók og glósurnar úr lyfjaefnafræði en las ekki nema þrjár glærur og svaf síðan í næstum þrjá klukkutíma. Það eru nú ekki mikil afköst ef ég ætla að sofa í einn klukkutíma fyrir hverja glæru sem ég les. Síðan til að bæta daginn var Táta búin að éta kúlusúkk pokann minn og ég á ekkert nammi.
Það þýðir samt ekki að væla endalaust, ætla að fara að fá mér engifer og hvítlauk og athuga hvort ég hressist ekki við það.
09 mars 2006
Birt af Nafnlaus kl. 18:53
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|