24 mars 2006

Ég er svo mikill lúði....
Ég sit hérna á föstudagskveldi og er svo upptekin að því að læra að ég gleymdi meira að segja að borða! (gott að heyra það núna að Axel er heldur ekki búinn að borða og ætlar að kaupa eitthvað gotterí fyrir okkur á leiðinni heim, mmmm... hljómar betur er súrmjólk ;) (heyrist það núna að það sé jafnvel Eldsmiðjupizza! það hlaut að koma að því að ég smakkaði eina svoleiðis!)
Er búin með 1/2 3.kafla í ónæmisfræðinni og ætla að segja þetta gott í kveld, þarf helst að ryksuga og fara út að labba með hundinn (já, ég er gjörsamlega að skjóta mig í fótinn lúðalega séð) þessi kafli hefur annars sína kosti og galla:

  • Downs: frekar leiðinlegt að lesa þennan kafla af því það er mjög lítið úr glósunum úr honum og manni finnst maður vera soldið að sóa tíma hérna...
  • Ups: ég er frekar fljót að lesa þetta þar sem það var svo lítið sem maður þurfti að staldra við, mjög gott fyrir egóið að vera svona fljótur ..
Annars var mér að bjóðast að gerast fræg, hlaut að koma að því, ég er barasta búin að vera að bíða eftir þessari bón...
okey, kannski ekki fræg en kannski að eiga möguleika á því að láta glitta í mig í nanósekúndu í fullum sölum af fólki í auglýsingu sem verður tekin upp á morgun. En maður er svo merkilegur með sig að vera upptekinn í að láta rigna uppí nefið á sér og þykjast vera too busy við að læra að frægðin mín verður bara að bíða betri tíma... kannski verður ýkt frægur umboðsmaður sem heyrir mig syngja í brúðkaupi Erlu mágkonu og þá fer þetta allt að smella! Aldrei að vita, um að gera að halda í vonina um eitthvað magnifisent gerist þegar bækurnar eru það eina sem heldur manni kompany...