Í gærkvöldi fór ég að sjá The constant gardener í bíó. ansi góð mynd, líka mjög gaman að því hvað lyfjafyrirtækin eru alltaf látin vera vond í bíó! En í þessari mynd var það bendlað við fyrirtæki sem framleiddi einhvers konar eitur fyrir arfa og illgresi (er ekki vel að mér í garðyrkju...) og þessi fyrirtæki höfðu samsæri ásamt bresku ríkisstjórninni að prófa e-ð berklalyf, sem ekki virkaði, á saklausu fólki í Afríku sem dó af því.
Ansi spennandi mynd en ég gat aldrei skilið af hverju lyfjafyrirtækið ætti að vilja prófa lyf sem ekki virkaði nógu vel og dró fólk auk þess til dauða af því að það myndi auðvitað að lokum komast upp að lyfið væri ekki nógu gott og þá færir fyrirtækið bara á hausinn! Betra að eyða meiri peningum í frekari rannsóknir og formúleringu fyrst....
Ótrúlega merkilegt hvað lyfjafyrirtæki eru illa liðin, eins og þetta séu einu fyrirtækin í heiminum sem mega ekki græða því þá eru þau vond! Þið gerið ykkur því grein fyrir því stelpur að við erum að eyða 5 árum af ævi okkar í háskólanám til þess að verða vondi kallinn!!
17 mars 2006
Birt af gudrunst kl. 09:22
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|