28 mars 2006

Hvað er eiginlega í gangi hérna. Ekkert blogg frá öðrum en Guðrúnunum, það mætti halda að þið væru allar komnar með fuglaflensu. Kannski er þetta bloggleysi vegna þess að G.Stef var sett í fræðigreina stopp um óákveðinn tíma.
Annars geri ég ekki mikið annað núna en að horfa á sjónavarpið, þar sem það er langt síðan ég hef haft aðgang að svona mörgum sjónvarpsstöðvum. Ég mun nú samt skella mér í brúðkaup á laugardaginn og verður örugglega svaka stuð þar. Bróðir minn vill halda partý fyrir 30 manns á meðan ég verð í brúðkaupinu og skilur ekkert í því að ég sé ekki ánægð með það (hver ætli þurfi að þrífa eftir það???). Ég bauð honum í staðin að passa strákinn og hundinn en honum finnst það ekki nógu spennandi, aldrei hægt að gera þessum unglingum til geðs :)