Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er ég mjög smámunasöm. Próflesturinn er eiginlega ekki lestur heldur snýst hann meira um það að ég er að leiðrétta það sem ég hef glósað, endurraða, merkja alla kafla með post-it, osfrv. Ég hef samt aldrei gengið eins langt og ég hef gert undanfarna daga, en það er að ég er að leiðrétta glósurnar úr lyfjaefnafræði. Hafið þið tekið eftir hversu margar myndir af efnabyggingum eru vitlausar? og á einum stað er meira að segja vitlaus mynd. Eigum við bara að læra vitlausu byggingarnar?
Annars er ég ekki að nenna að læra og langar helst bara að skella mér á gott fyllerí.
18 apríl 2006
Birt af Nafnlaus kl. 13:58
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|