- Ég nenni þessu GMP ekki, hversu lengi á eitt verkefni að vera í gangi ??
- Nýja fólkið í kjallaranum er af og til með hávaða við breytingar þannig að ég er búin að panta far fyrir hundinn í sveitapössun á morgun þannig að frá fös og framað Kanarí verð ég staðsett á Bókhlöðunni, memm?
- Ég þurfti því miður að horfast í augu við það í gær að til að ná jafnri yfirferð yfir námsefnið þyrfti ég að breyta um strategy... Þannig að eiginlegur skólabóka-kafla-lestur hefur verið lagður niður, vonandi virkar næsta strategy sem verður mótuð á meðan hún er notuð. Gagnlegar ábendingar eru þegnar...
- Það sökkaði að kveðja fólkið í vinnunni í dag, s.s. seinasti dagurinn. Fattaði það að þetta er skemmtilegast vinna sem ég hef verið í ; skemmtileg vinna og skemmtilegt fólk.
- Það rúlar að eftir viku verð ég í sólinni, sérstaklega þegar veðrið lætur svona! Samt er ég ekki í vonda-veðurs-pilsinu!
- Afhverju er þægilegara að setja saman svona blogg heldur en í samfeldu máli?
- Á einhver próf í samþættri?
- Myndband dagsins í dag er þetta, minnir mig pínu á hundinn minn þó hún sé nú ekki svona grimm við sjálfa sig!
05 apríl 2006
Birt af Nafnlaus kl. 21:44
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|