04 apríl 2006

jæja jæja ég var núna rétt í þessu að koma úr magadansi. Mér til mikilla vonbrigða var mér tilkynnt þegar ég mætti að Jóhanna væri hætt að kenna okkur því hún væri farin að kenna byrjendum 1, því þær vildu allar hafa hana! Halló sko! við höfum haft hana lengi og erum auk þess lengra komnar og erum hópurinn hennar! mjög asnalegt sko... en okkur var þó sagt að þetta yrði bara í 1 mánuð meðan þetta byrjenda námskeið er og svo kemur hún aftur.

Svo til að toppa allt þá áttum við að vera í pínku litlum sal sem bara tekur 8 dansara mest (við vorum svona 15/16. Það var ansi mikið þröngt og þetta var því það var e-ð gæsapartý í salnum okkar og svo varð auðvitað að láta byrjendurna fá góðan sal. Þetta var samt bara í dag útaf þessu gæsapartýi en samt...ekkert pláss fyrir okkur að dansa.

En samt verð ég eiginlega að segja að þessi tími var bara með þeim bestu sem ég hef farið í!! kannski á maður bara aldrei að gera sér neinar vonir og vera fúll fyrirfram og þá verður allt miklu miklu betra en maður bjóst við?!?!
Tíminn var samt mjög erfiður, dansað uppá tám allan tímann. Ég er að drepast í táberginu og kálfunum úff... en við æfðum sporin svo vel og vorum virkilega að vinna bara í tækninni og ég elska slíka tíma alltaf. Eins og mér finnst gaman að dansa dansana þá finnst mér það auðvitað ekkert gaman ef ég hef ekki vald á tækninni á bak við sporin í dansinum.

Þannig að ég verð að segja að þetta var bara frábær danstími og ég hlakka til að fara í næsta því hann verður víst á svipuðum nótum!