08 maí 2006

Smá pæling frá mér í tilefni dagsins...sko ef aukaverkun af lyfi sem maður tekur er þyngdaraukning.....af hverju er þá tekið sérstaklega fram að "aukaverkun" af því að hætta sé megrun? og akkuru ætti það að vera slæmt?
Fannst þetta ekki alveg passa í okkar samfélagi.......

En ef þið eruð farnar að vera þreyttar og pirraðar á próflestrinum þá er hér eitt sem ég mæli með, það er mjög hressandi að skella smá piparmintu dropum útí baðvatnið hjá sér eða í fat af heitu vatni og anda að sér gufunni. Einnig er mjög gott að útbúa hármaska með piparmintu eða piparmintu olíu og bera í hársvörðinn og nudda vel. Maður verður aldrei jafn ferskur ;)

Svo mæli ég með fótabaði fyrir svefninn það er svo róandi. Þá væri bolli af kamillutei líka við hæfi (einnig ef ykkur er illt í maganum, það róar magann). Farið vel með ykkur elskurnar mínar......