07 júní 2006

Þessi póstur er skrifaður til heiðurs Helgu Birnu sem hélt glæsilegt og eftirminnilegt bekkjarpartý í æðislegu íbúðinni sinni! Partýið var fámennt en góðmennt mjög. Á boðstólum var alltof mikið af snakki og nammi (ekki hægt að hætta þegar svoleiðis er fyrir framan mann).
Nokkuð var slúðrað og einnig rætt um sumarvinnurnar sem eru misskemmtilegar með misskemmtilegum kúnnum. En allar voru sögurnar þó skemmtilegar!

Vegna þess að little Jesus átti afmæli var svo farið heim til hans þar sem hann var með smá teiti. Hefði eiginlega heldur átt að bjóða því fólki til HB þar sem var meira pláss! Svo var farið í bæinn þar sem 3 ungar stúlkur (2 að nafni guðrún + HB) dönsuðu fram undir morgun. Það leiðinlega atvik átti sér þó stað á Hressó að ungur piltur hellti úr fullum bjór (ódýrum kranabjór í þokkabót) yfir Izaac Mizrahi buxurnar hennar GS sem harmaði það mjög.

Að loknum miklum dansi þar sem stundum þurfti að nota klósettpásur eða annað álíka til að forða sér undan örvæntingarfullum ungpiltum fóru GS og Lindin á Hlölla og enda svangar mjög og þreyttar í fótum eftir allan dansinn. Maturinn gerði nú ansi gott þó hans þyrfti að neita standandi.
Þess skal geta að HB hafði orðið eftir á Oliver fyrr um nóttina vegna þess að vinkona hennar var þar og gat hún því ekki komið með á Hlöllann