12 júní 2006

Ég kom dauðþreytt heim úr vinnunni áðan til að komast að því að mínir ofurhressu 3ja og 5 ára gömlu frændur eru í heimsókn...ekki góð blanda.....

Þessar umræður áttu sér stað við matborðið og fannst mér ansi fyndið: Guðmundur; Já en af hverju þarf að borga sjómönnunum fyrir fiskinn?
Grímur; Svo maður verði ekki þjófur
Guðmundur; Nei ekki ef það er yfirvinna!!

Þeir geta nú alveg verið yndislegir........eins og þegar Guðmundur sagði á lau að ég væri með svo falleg gleraugu og hann hefði aldrei séð svona flott gleraugu og að ég væri líka með fallegt hár:) Var vissulega good hair day en ekki hver sem er sem hrósar manni fyrir það ;)