ég er með tillögur að útskriftarferð!
eða svona nánari útfærslu á hugmynd númer 2 hjá kötlu.
tillaga 1
-flug til london (ca.20þús báðar leiðir)
-3 daga námferð í london+ kannski 2 aukadagar í london (segjum að gisting kosti20-25þús, hef svo sem ekki hugmynd um það)
-flug til bangkok ( 600pund eða ca.80þús með british airways, báðar leiðir)
-vera í bangkok í 4-5 daga(gisting á hótelum þar var ca. 2-4þús á herb per nótt s.s. 1-2þús á mann) www.bangkok.com
-fljúga til phuket (klukkutíma flug sem kostar 10-12þús með bangkok airways)
-vera í phuket í ca. 10 daga ( gisting er 1-2þús kr á mann per nótt og uppúr, það er hægt að velja mun dýrari gistingu) www.phuket.com
-svo förum við heim via bangkok og london
-kostar ca. 160þúsund með öllu, svo kostar náttla skít og kanil að lifa á thailandi.
tillaga 2
-förum í gegnum london en stoppum ekki eins lengi þar heldur förum beint til bangkok og höfum námsferðina í bangkok í ca.3-4 daga og svo verðum við bara túristar 4-5 daga.
-förum svo til phuket í ca. 10 daga
-kostar ca. 140þúsund
tillaga 3
námsferð til bangkok og svo útskriftarferð bali.
ég er ekki alveg búin að grennslast fyrir um flug og hvað það kostar en mér finnst líklegt að það sé svolítið dýrara því bali er soldið lengra í burtu og það myndi líka kosta svolítið meira ferðalag held ég.
hvernig lýst ykkur á?
svo náttla lögum við bara dagafjöldann til eftir því sem okkur hentar, ef fólk kannski vill vera lengur á þessum stað frekar en hinum. ég held það sé mjög skemmtilegt að fara til bangkok og við getum örugglega fengið að skoða lyfjafræðideildina í háskólanum sem er að byrja í samstarfi við deildina okkar.
svo verðum við að fara að halda fund til að ákveða þessi mál svo það sé hægt að fara að redda kennara og fara að bóka á fullu í þetta allt saman;)
knús Dísa Diggs
22 september 2006
Birt af Eydís kl. 17:46
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|