14 september 2006

Kræst!!!! Núna rétt í þessu var (sem betur fer) FJÓRÐI geitungurinn að fara útúr íbúðinni hjá mér, fyrsti var til staðar þegar ég vaknaði og ég tók bara fötin mín fram og lokaði á eftir mér og hann var farinn þegar ég kom aftur úr skólanum, en þá var kominn einn inní læriherbergið mitt (ok, gæti verið sá sami) þannig að ég opnaði gluggann þar og lokaði á eftir mér... Svo þegar ég ætlaði að hefjast handa þá var hann ekki farinn út um opna gluggann, heldur annar kominn inn!! Þá 2 þurfti ég að fjarlægja sjálf með hjálp hárspreys, loksins á hárspreyinu og blaði (vildi ekki kremja þær í glugganum mínum og hafa geitunga blóð þar, bjökk) og svo var sá fjórði að kíkja í heimsókn þrátt fyrir að ég passaði að hafa mjög litla rifu á glugganum, hann elti mig þegar ég speed-walked inní stofu og fór út um stofugluggann eftir að ég galopnaði hann og svalarhurðina... þoli ekki svona kvikindi!!!

ps, ég nenni ekki að gera sumarverkefnið mitt en samt vildi ég helst vera búin með það!! Soldið fúlt þegar maður nær ekki óskastaðnum nema maður fari leiðina sem maður nennir ekki