Blogga! sagði Sigrún, og þá bloggar man...
Sit núna uppá hlöðu og er að sofna ofaní LEN glósurnar, og það er ekki (einungis) útaf því að þetta er svo "skemmtilegt" efni heldur vegna þess að ég fór að sofa kl 4 í nótt!! já, þið lásuð rétt, kl 4 í nótt, við fórum úr bænum kl 4 í gær og komum aftur í bæin í nótt eftir 12 klst fjarveru. Og hvað vorum við að gera svona tímafrekt og merkilegt? jú, við vorum að verka belju! við keyptum okkur hálfa belju um daginn og ekki tókst að slátra fyrr en fyrir rúmri viku, þannig að núna um helgina þurfti að verka kjötið, það hitti samt svo illa á hjá okkur að Axel er á námskeiði alla helgina til 6 þannig að við urðum að gera þetta að kvöldi til. Kallinn stakk af úr námkseiði kl 4 í gær, við brunuðum á laugarvatn að sækja kusu og svo beint í Selfoss-sveitina hjá ma&pa að verka... bjuggumst við að þurfa að koma aftur í kvöld og klára en náðum að klára með því að keyra þetta áfram frammá nótt, með mjööög góðri hjálp gamla settsins. Þannig að nú eigum við hakk í 1 hakkmáltíð á viku í ár og svo gúllas og steikur og snitsel og roastbeef og fille! já, það verður sko veislumatur hjá okkur næsta árið! Eins gott að þetta verði jafn gott og við búumst við því mikið rosalega varð manni kalt á puttunum við að verka og mikið rosalega er ég þreytt núna...
ps, ég bara varð að koma með romsu sem kemur skólanum nánast ekkert við, svona áður en heitar prófumræður hertaka síðuna 
25 nóvember 2006
Birt af Nafnlaus kl. 14:53
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
|